Loksins nenni ég að
blogga aftur. Ég er allavega komin frá Englandi og er núna
búin með öll námskeiðin sem ég þarf að klára fyrir prófið í
haust. Þetta voru mjög skemmtileg námskeið fyrsta var í
fóðrunar og næringarfræði sem var reyndar mjög erfitt þar sem
allt var á ensku en sem betur fer er ég búin að læra þetta
allt á Hólum þannig þetta var líka bara upprifjun. Næsti
dagur var “the horse as an athlete,, eða hesturinn eins og
íþróttamaðurinn og var um lífeðlisfræði hrossa og hvernig
líkaminn virkar við þjálfun og álag. Helgina eftir þetta var
“ Stud practise og Foal handling og var um stóðhesta, merar,
folöld, fyljanir og hvernig æxlunarfærin virka. Svo vorum við
að læra hvernig ætti að venja folöld við snertingu frá
manninum án þess að vera með einhver læti eins og vill oft
verða hjá fólki. Þau voru ekkert smá sæt við vorum með 3
folöld, Heitblóðshestakyn, Skírisklár (Enskt dráttarklárskyn)
og Velskan Cobb.
Kennarinn minn hann Ian Vanderberg er einn mesti
snillingur sem ég hef kynnst. Hann er fyrsti “instructorinn” hans
Montys hestahvíslara og er aðstoðarmaður hans og algjör náttúru
hestamaður hvað varðar líffræði, sjúkdóma í hrossum og byggingu
hrossa. Hann veit ALLT um hesta og dýralæknar leita til hans þegar
þeir eru í vandræðum. Svo er hann líka geggjað skemmtilegur kennari
og ekki eðlilega fyndinn.
En anyways næsta skrefið í þessum málum mínum er
að sækja um prófið sem er í nóvember og það er 7 daga próf bæði
verklegt og bóklegt svo þarf ég að skrifa ritgerð og gera rannsókn
um eitthvað tengt atferlisfræði, sálfræði, hegðun eða
hegðunarvandamálum hrossa og á að halda ræðu um það. Þetta verður
erfiðasa próf sem ég hef tekið á ævinni en þetta er bara áskorun á
mann. Maður hefur gott af þessu. Ef einhver getur sagt mér hvernig
á að gera rannsókn þá væri það frábært. Hef ekki hugmynd hvernig
það er gert.
Ég þarf að fara að senda video út til að sækja um
prófið þar sem ég þarf að gera 3 join up, 2 bara join up og 1 þar
sem ég set hnakk á og knapa. Þið vitið örugglega ekki öll hvað join
up er en ég útskýri seinna hvað það er. Svo fæ ég svar í ágúst
hvort ég fæ að taka prófið eða ekki.
En allavegana þá var geggjað stuð í London ég var
þar á virku dögunum og Árni passaði sko að Anítu sinni leiddist
ekki fór með hana á alla pöbbana og djammið og hjálpaði henni að
kaupa tölvu og þegar Anítan villtist (sem gerðist oft) hjálpaði
hann henni að finna leið sína aftur enda varð maðurinn líka
útkeyrður eftir þennan erfiða djamm gest og svaf í 3 daga eftir að
hún fór.
En toppnum á ferðinni var náð (eða kannski betra
að segja botninum var náð) þegar Anítus litla fór á djammið síðasta
kvöldið í Englendinga landi og var rekin af skemmtistað fyrir að
vera OF FULL! Af því ég datt aðeins í stiganum og þá kom bara
dyravörður og bara út með fylliraftinn! Og ég orðin alveg brjáluð
út af þessum dónaskap í gaurnum en ég bara gat ekki verið brjáluð
þar sem ég var svo full þannig ég fór bara í fýlu í staðinn.

Þá var málið sko ef ég mundi detta á hausinn og
fá gat á hausinn þá gæti ég kært staðinn eitthvað svona kjaftæði!
Ég held það sé nú bara mér að kenna ef ég fæ gat á hausinn og engum
öðrum! Hvar er bissness vitið í þessi liði! Staðurinn er að græða á
fulla fólkinu og starfsfólkið er að fá launin sín af því. Ohhh
hálfvitar í útlendingalandi. 
En allavega það var rosa gaman að fara grútþunn í
flugvélina daginn eftir, mér hefur aldrei liðið betur.
En svo er ég loksins búin að kaupa mér tölvu og
núna er ég föst við hana á kvöldin þess vegna er þetta blogg svo
langt ég get ekki hætt að vera í nýju tölvunni minni. Það er allt
það nýjasta í henni, nýjasta windows bla bla bla og nýjasta tölvu
eitthvað bla bla bla man ekki alveg. En nú er ég hætt látið í ykkur
heyra!